Við undirrituð krefjumst afsagnar þeirra þingmanna sem urðu sér til skammar á Klausturbarnum.

Comments

#1007

Slík orðræða og framkoma á ekki líðast hjá þeim sem eru kosnir á þing af þjóðinni. Bera greinilega enga virðingu fyrir því hlutverki og öðrum kjörnum fulltrúum. Það á þá væntanlega líka við um þjóðina.

(Reykjavík, 2018-11-30)

#1014

Framferði þessa fólks er siðlaust og þingi og þjóð til skammar

(Hafnarfjörður, 2018-11-30)

#1017

Innrætti þessa fólks á ekki heima inn á Alþingi Íslands.

(Reykjavík, 2018-11-30)

#1024

Mér er ofboðið. Framkoma alþingismannana er sannarlega skammarleg.

(Reykjavik, 2018-11-30)

#1039

Hneyksli

(Reykjavík, 2018-11-30)

#1062

Burtu með þá!

(Reykjavík, 2018-11-30)

#1066

Þessi framkoma er til skammar fyrir land og þjóð :(

(Reykjavik, 2018-11-30)

#1093

Það er algjörlega ólíðandi að hafa fólk á þingi sem er svona stútfullt af fordómum gagnvart minnihlutahópum. Áfengi gerir ekkert annað en að losa hömlur og láta fólk segja það sem það hugsar an ritskoðunar.

(Kungsbacka, 2018-11-30)

#1094

Mér ofbýður hátterni þessara þingmanna.

(Reykjavík , 2018-11-30)

#1120

Algert vantraust og hneyksluð

(Reykjavík, 2018-11-30)

#1170

Svona hagar siðað fólk sér ekki.

(Reykjavík, 2018-11-30)

#1191

Þetta eru ekki þær manngerðir sem ég vil hafa á þingi. Burt með þennan sora!

(Gardabaer, 2018-11-30)

#1194

Sú opinberun sem átti sér stað í fréttum síðustu daga vekja ugg, að fólk í valdastöðum skuli sýna af sér slíka mannfyrirlitningu er einfaldlega aðför að þeirri mannréttindabaráttu sem hefur tekið ótrúlega langan tíma talið í mannslífum. Ef þetta er ekki kýrskýrt dæmi um samtvinnun þá veit ég ekki hvað! Þessi hópur hafði ekki einungis í frammi eina staðhæfingu gegn einum einstakling, heldur spönnuðu yfir gríðarstóran völl, kvenfyrirlitningu, fyrirlitningu gagnvart fötluðum, gagnvart kyn*****d fólks o.fl.

Hvernig á að vera hægt að treysta þessum valdhöfum eftir slíka opinberun, slíkt brot á trausti hefur nefnilega víðtækari afleiðingar en að bara þessum einstaklingum verður ekki aftur treyst. Allt kerfið er undir í slíku broti, hverjum er treystandi sem fer með vald yfir lífi einstaklinga og minnihlutahópa sem eiga undir högg að sækja?

(Ísafjörður, 2018-11-30)